ætli þau gömlu sendi mér eitt stk svona hingað út!

Já nú spyr ég hvort hún móðir mín kaupi handa mér páska egg frá þeim og sendi mér síðan!?? Halo Ég verð samt að setja út á póstþjónustuna þar sem frænku minni var sagt síðasti séns að senda jólapakkann á ákv degi svo hann kæmi fyrir jól... jú hún dreif pakkanum í póst meira að segja einhverjum dögum fyrir þennan ákv dag enn þegar allt kom til alls þá kom pakkinn í febrúar... veit ekki hvort þetta sé íslandspósti að kenna eða póstþjónustan hérna á ítalíu enn það er aldrey hægt að stóla upp á þessa dagsetngingu hjá þeim! Ég sendi litlu frænku í fyrra afmælispakkann sinn enn svo kom ég í giftingu systur minnar sem ég átti ekki að getað komst í vegna náms, þannig að ég kom og síðan fór áður enn afmælispakkinn kom. Hann kom síðan rétt fyrir jól eða 2og hálfum mánuði seinna, greyið litla frænka aðeins 4gra ára budda að bíða eftir pakkanum sínum! Tveir og hálfur mánuður þar ansi svekkjandi fyrir lítlu skvísuna. Enda sendi ég mömmu eftir að kaupa afmælisgjöf þetta árið þar sem ég er jú uppáhalds frænkan vil ég ekki valda greyinu mínu vonbrigðum aftur.

 


mbl.is Smokkar og súkkulaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband